Verkefni

Við erum stolt af þeim fjölbreyttu og krefjandi verkefnum sem við höfum unnið að. Við höfum sérsniðið veflausnir fyrir fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum, allt frá litlum sprotafyrirtækjum til stórra stofnana. Hér eru nokkur valin verkefni frá Reykjavík Digital.

Skjáhætta

Sjóvá og Samgöngustofa

Skjáhætta er upplýsinga- og fræðsluvefur sem fjallar um áhrif skjánotkunar undir stýri. Vefsíðan er samvinnuverkefni Sjóvá og Samgöngustofu sem tóku höndum saman til að berjast gegn þessum hættulegu venjum og sýna fram á fáránleika þess sem við erum raunverulega að gera undir stýri. Vefurinn býður upp á fjölbreyttar upplýsingar og ráðleggingar um hvernig má draga úr skjánotkun við akstur, minnka þannig slysahættu og bæta öryggi í umferðinni. Við hjá Reykjavík Digital sáum um vefþróun og leitarvélabestun (SEO) fyrir skjahaetta.is.

Ceedr

Ceedr

Reykjavík Digital sá um vefþróun fyrir Ceedr (áður þekkt sem The Engine Nordic) þar sem unnið var að því að skapa nútímalega og notendavæna vefsíðu sem styður við vöxt þeirra í stafrænum markaðslausnum. 

Orkureiturinn

Safír

Orkureiturinn er nýtt og glæsilegt íbúðahverfi við Laugardalinn, sem er vinsæl útivistarparadís borgarbúa. Með fallegri hönnun og vönduðum lausnum er Orkureiturinn einstakur staður til að búa á. Við hjá Reykjavík Digital sáum um alla vefþróun og leitarvélabestun fyrir Orkureitinn, sem tryggir að vefsíðan endurspegli gæði og einstaka eiginleika hverfisins á sem bestan hátt.

Verkís

Verkís

Verkís er leiðandi verkfræðistofa á Íslandi sem býður upp á fjölbreytta og sérhæfða verkfræðiþjónustu. Með áratuga reynslu og víðtækri sérfræðiþekkingu, tekur Verkís að sér verkefni á ýmsum sviðum, þar á meðal byggingarverkfræði, umhverfisverkfræði, orku- og auðlindaverkfræði, samgönguverkfræði og fleira. Verkís leggur mikla áherslu á gæði, öryggi og nýsköpun í öllum sínum verkefnum.

Við hjá Reykjavík Digital sáum um alla vefþróun og innleiddum leitarvélabestun (SEO) fyrir verkis.is.

EAÜ

Eesti Autorite Ühing

Reykjavík Digital tók að sér heildarverkefni fyrir Eesti Autorite Ühing (EAÜ) sem fól í sér þróun nýrrar vefsíðu og bakendakerfis, auk leitarvélarbestunar (SEO). Verkefnið miðaði að því að einfalda aðgengi notenda að upplýsingum um höfundarétt, samninga og aðra þjónustu EAÜ. Sérsniðin bakendalausn tryggir skilvirka vinnslu gagna fyrir notendur og félaga EAÜ. Leitarvélabestunin hjálpaði til við að auka sýnileika samtakanna á netinu, sem leiddi til betri notendaupplifunar og aukinnar umferðar á vefsíðunni.

Stólpi Gámar

Stólpi Gámar

Stólpi Gámar er leiðandi fyrirtæki í gámaþjónustu og lausnum fyrir geymslu- og byggingarþarfir á Íslandi. Vefsíðan þeirra, sem hönnuð og þróuð var af Reykjavík Digital, endurspeglar styrkleika þeirra með stílhreinni hönnun og notendavænu viðmóti. Við lögðum áherslu á leitarvélabestun og fallega uppsetningu til að tryggja að þjónusta Stólpa Gáma skili sér til viðskiptavina á skýran og skilvirkan hátt. Þetta tryggir að vefsíðan gefur rétta mynd af fjölbreyttri þjónustu og gæðum fyrirtækisins.

Vegasaltið

Stígamót

Sjúkást er forvarnarátak á vegum Stígamóta sem beinir sjónum að ofbeldi í nánum samböndum ungmenna. Markmið átaksins er að fræða ungmenni um lykilhugtök eins og mörk og samþykki, auk þess að hjálpa þeim að greina muninn á heilbrigðum, óheilbrigðum og ofbeldisfullum samböndum.

Við hjá Reykjavík Digital sáum um alla vefþróun á þessu átaki og erum stolt af því að verkefnið var tilnefnt til PHNX verðlauna.

Red Gate Capital

Red Gate Capital

Reykjavík Digital tók að sér verkefni fyrir Redgate Capital, þar sem unnið var að heildarhönnun, þróun og leitarvélabestun á vefsíðu þeirra. Markmiðið var að skapa notendavæna og faglega vefsíðu sem endurspeglar þjónustu Redgate Capital á fjármálaráðgjafamarkaði í Eystrasaltsríkjunum. Með sérstakri áherslu á leitarvélabestun tókst að auka sýnileika fyrirtækisins á netinu og bæta notendaupplifun viðskiptavina. Þetta verkefni sameinaði tæknilega þekkingu og skýra sjónræna framsetningu til að hámarka árangur á stafrænum vettvangi.

Klasi

Klasi

Klasi er þekkingarfyrirtæki sem einblínir á þróun og nýtingu fasteigna með sjálfbærum og árangursríkum lausnum. Reykjavík Digital hannaði og forritaði vefsíðu þeirra til að endurspegla faglega nálgun Klasa og víðtæka reynslu þeirra á sviði fasteignaþróunar. Vefsíðan miðlar upplýsingum um verkefni, stefnu og framtíðarsýn fyrirtækisins á skýran og aðgengilegan hátt.

Gevalia kaffi

Ölgerðin

Gevalia Kaffi er einföld og falleg lendingarsíða, hönnuð og forrituð af Reykjavík Digital fyrir Ölgerðina. Síðan kynnir vörur Gevalia og leggur áherslu á gæði kaffisins í notendavænu og aðlaðandi umhverfi. Markmiðið var að búa til skýra og upplýsandi síðu sem fangar anda og sérstöðu vörumerkisins á einfaldan hátt og gerir notendum auðvelt að nálgast upplýsingar um úrvalið.

Linklaw

Linklaw

Reykjavík Digital tók að sér verkefni fyrir Linklaw, þar sem unnið var að hönnun, forritun og leitarvélabestun (SEO) á vefsíðu þeirra. Verkefnið fól í sér að skapa notendavæna og áreiðanlega vefsíðu sem styður við fjölbreytta þjónustu fyrirtækisins á ólíkum sviðum lögfræðinnar. Sérsniðin lausn tryggði öflugt bakendakerfi og framúrskarandi notendaupplifun. Leitarvélabestun bætti sýnileika Linklaw á netinu og tryggði betri árangur í leitarmótorum, sem leiddi til aukinnar umferðar og fleiri viðskiptavina.

Jörth

Jörth

Jörth er netverslun með áherslu á bætiefni til að bæta meltingu og styrkja heilsu með náttúrulegum hráefnum. Reykjavík Digital hannaði og forritaði netverslunina fyrir Jörth og bjó til aðlaðandi og notendavæna síðu sem sýnir vörurnar á einfaldan hátt. Vefsíðan fangar anda og stefnu Jörth og gerir notendum kleift að skoða vörulínuna á aðgengilegan hátt og klára kaupin á netinu.

Kjarkur endurhæfing

Kjarkur endurhæfing

Við hjá Reykjavík Digital sáum um að aðstoða Kjark endurhæfingu með hönnun og forritun á vefsíðu þeirra. Vefsíðan er hönnuð til að veita notendum skýrar upplýsingar um fjölbreytta endurhæfingarþjónustu, þar á meðal dag- og sólarhringsþjónustu, sem fyrirtækið býður upp á fyrir hreyfihamlaða einstaklinga með tauga- og heilaskaða. Markmiðið var að búa til notendavæna síðu sem endurspeglar faglega og einstaklingsmiðaða nálgun Kjarks endurhæfingar.

Borgarhöfði

Klasi

Borgarhöfði er hluti af fasteignaþróunarverkefnum Klasa, þar sem lögð er áhersla á sjálfbærni og grænar lausnir í borgarumhverfi. Reykjavík Digital sá um hönnun og forritun vefsíðunnar fyrir Borgarhöfða, sem miðlar skýrri sýn Klasa á vistvæna uppbyggingu og betri lífsgæði. Vefsíðan undirstrikar stefnu þeirra um að skapa umhverfi þar sem borgin mætir náttúrunni og öll þjónusta er innan seilingar.

Grísaðu á vinning

Bónus

Bónus ákvað að bregða á leik sumarið 2024 þegar karlalandslið Íslands í knattspyrnu mætti Englandi í vináttulandsleik á Wembley. Í samvinnu við PiparTBWA þróaði Reykjavík Digital stafrænan leik, sem bar nafnið „Grísar þú á vinning“, enda Bónusgrísinn geðþekki í aðalhlutverki. Leikurinn var aðgengilegur á vefsíðu Bónus og heppnir vinningshafar gátu unnið ferð á Wembley. Þess má til gamans geta að Ísland vann leikinn 1–0.

Arctic Therapeutics

Arctic Therapeutics

Arctic Therapeutics er frumkvöðull í þróun lyfja með áherslu á erfðamengisrannsóknir og gervigreind. Reykjavík Digital sá um hönnun og forritun vefsíðu fyrirtækisins, ásamt hönnun vörumerkis, ásýndar, og umbúða. Vefsíðan endurspeglar vísindalega nálgun þeirra og veitir ítarlegar upplýsingar um rannsóknir og vörur, sem stuðla að nýsköpun í lyfjaþróun.

Arnarlax

Arnarlax

Arnarlax er leiðandi fyrirtæki í fiskeldisiðnaði á Íslandi, staðsett í hinum fallega Arnarfirði. Fyrirtækið sérhæfir sig í framleiðslu á hágæða eldislaxi með áherslu á sjálfbærni og gæða. Arnarlax notar bestu fáanlegu tækni og fylgir ströngustu kröfum um umhverfisvernd til að tryggja heilbrigðan og öruggan lax fyrir neytendur um allan heim.

Við hjá Reykjavík Digital sáum um alla vefþróun og leitarvélabestun (SEO) fyrir arnarlax.is. Vefsíðan er hönnuð til að vera notendavæn, upplýsandi og endurspegla skuldbindingu Arnarlax til sjálfbærni og gæði. Með aðgengilegri og vel uppsettri vefsíðu geta viðskiptavinir auðveldlega fengið upplýsingar um vörur og starfsemi Arnarlax, sem og nýjustu fréttir af þróun í fiskeldisgeiranum.

Kjálkaskurðlæknastofan

Kjálkaskurðlæknastofan

Við hjá Reykjavík Digital sáum um uppsetningu, forritun og vefsíðugerð fyrir Kjálkaskurðlæknastofuna, sem hefur verið starfrækt frá 2008. Stofan sinnir öllum almennum aðgerðum tengdum munnholi og kjálkum, þar á meðal endajaxlaaðgerðum, tannúrdrætti, ísetningu tannplanta (implanta) og kjálkaaðgerðum tengdum tannréttingum.

Við gerðum vefsíðuna leitarvélavæna og sáum um leitarvélabestun til að tryggja að hún nái sem best til notenda. Starfsfólk stofunnar býr yfir mikilli reynslu og sérþekkingu á þessu sviði.

Hard Rock

Hard Rock Ísland

Reykjavík Digital sá um að hanna lendingarsíðu fyrir Hard Rock á Íslandi. Síðan, www.hardrock.is, er notuð til að keyra herferðir og veita upplýsingar um veitingastaðinn. Við hjá Reykjavík Digital getum boðið upp á öflugar lendingarsíður fyrir bæði stór og smá fyrirtæki, sem eru hannaðar til að hámarka árangur í markaðssetningu og upplýsingagjöf.

Nox Health

Nox Health

Við hjá Reykjavík Digital sáum um að aðstoða Nox Health með hönnun og forritun á vefsíðu þeirra. Markmiðið var að skapa notendavæna og upplýsandi vefsíðu sem miðlar vel svefnheilbrigðislausnum Nox Health. Vefsíðan gerir notendum kleift að kanna þjónustu og lausnir fyrirtækisins á einfaldan og áhrifaríkan hátt og styður þannig við markmið þeirra um að bæta svefn og heilsu fólks um allan heim.